30.7.2007 | 17:30
úfffff...
..ég er svo þreytt eftir helgina!
en það er svo þess virði.. þetta var æðisleg helgi. Við fórum á kaffi ak, ég Rut og Nína og komum svo heim með vinafólk Nínu og fórum í singstar.. jaha... ætla ekkert að tjá mig um það meir
Ég og Rut fórum svo til Húsavíkur á laugardeginum á mærudaga. Það var ferlega gaman.. Við fórum til spákonu um kvöldið í mjög svo annasömu ástandi..það var líka mjög gaman
það er eiginlega ekki hægt að segja meira um þessa helgi, það er mitt að vita og ykkar ..uh ekki að vita..?
veit ekki hvort ég verði dugleg að blogga næstu daga. Unnur systir Rikka og dóttir hennar eru hjá okkur og svo eru tengdó að flytja til ak á morgun. Fullt að gerast! já svo er verslunarmannahelgin næstu helgi.. svona ef þið hafið ekki tekið eftir því..
Athugasemdir
Hei ekkert afmælisblogg komið.
Til hamingju með daginn þinn elsku Elísa síunga
Fullt fullt af knúsum og kossum frá okkur.........................
Fjóla og co (IP-tala skráð) 3.8.2007 kl. 19:29
nú er úff.....helgin búin og önnur til og nú er að setjast niður og blogga smá. Annars get ég svo sem lítið sagt, hef lítið sett inn á mína.
kv. mútter
Anna Maria (IP-tala skráð) 6.8.2007 kl. 15:16
Tek undir orð múttu þinnar!
Hentu í okkur smá brauðmola, þá hættum við kannski að kvarta í bili
Lov jú beib
Fjóla og co (IP-tala skráð) 6.8.2007 kl. 20:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.