18.6.2007 | 12:27
vei vei vei
jæja - fór í skoðun í morgun og Þórður ákvað að það yrði uppsetning á föstudaginn n.k. Ég þarf bara að sprauta mig með miðnætusprautunni svokallaðri sem ég mun gera í kvöld á slaginu kl 23:00... hún framkallar egglos sem yrði þá á miðvikudaginn og svo mæti ég á Art Medica kl 10:30 og þá verður sett upp hjá mér. Hann ætlar að taka eitt strá úr frysti sem inniheldur tvo fósturvísa en það gæti farið svo að annar (eða báðir) lifa það ekki af......... en það eru 80% líkur á að þeir lifi.. en ef að annar ''deyr'' þá verður bara settur upp einn, ef að báðir ''deyja'' þá verður annað strá tekið upp sem sýnir líka hversu heppin við erum að eiga 7 fósturvísa en við skulum bara vona að báðir lifi af svo að báðir verða settir upp...............
Þetta er bara gaman og ég ætla að reyna að nýta dagana fram að uppsetningu í að byrja að pakka aðeins niður fyrir flutningana því ég mun ekki gera mikið af því eftir upps. Þá verðu meira slakað á. En ég ætla ekki að liggja alveg fyrir eins og ég gerði síðast.. tek fyrstu dagana í ró en ætla svo að vera dugleg að fara meira út úr húsi - enga hlaupatúra sko - bara að heimsækja Fjólu mína og hitta fólk... Það hjálpar örugglega við að dreifa huganum meira.
En nú ætla ég að fara að gera eitthvað af viti..hvað sem það nú verður
takk í bili
Athugasemdir
æðislegar fréttir. Gott að þú ert með svona bjartsýnann lækni. Gangi þér vel elskan og við hugsum vel til þín. kv. mamma
Anna Maria (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 13:20
Frábært!! Þórður er bestur.
Ennþá allt í kross hér
Heyri í þér í kvöld eða á morgun
Fjóla (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 19:22
Hei beib....... Jiiiii hvað þetta er spennó. Ég er komin í svo mikin kross að Davíð greyið kemst ekki einu sinni að............ hehehehhe. Ég veit, ég veit ógeðsleggggga fyndin.
Hlakka til að heyra í þér á föstudaginn, það verð þá sennilega bara ég sem fæ mér öllara, haha, en það er sko allt í lagi því að ég er svo skemmtileg þegar ég er full?????????? Öhhhmmm.....
LUV from Norge..............
Arna Bjørk Barkardottira (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 21:42
Halló krúttan mín og takk fyrir síðast.
Frábærar fréttir.........þetta fer að gerast ég finn það;)
Mér þykir vænt um þig stelpa.
Þín
Birgitta
birgitta Haukdal (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 23:04
takk elllllskurnar fyrir fallegar kveðjur
mig þykir svo vænt um það!
Elísa (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 23:06
Þetta gerist núna
Gangi þér ofsalega vel og láttu heyra í þér dúllan mín :)
Lov you always
Sigrún (IP-tala skráð) 19.6.2007 kl. 00:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.