Þórður kominn aftur;)

jæja þá er Þórður kominn aftur, sem betur fer fyrir migTounge eeeennn það fór nú samt ekki betur en svo að það virðist ekkert vera að gerast hjá mérErrm hann er samt ekki alveg tilbúinn að gefast upp kallinn og vill að ég komi í skoðun aftur á föstudaginn.. síðasti séns! Ef að ekkert verður byrjað að gerast þá - nú þá er nokkuð augljóst að þetta gangi ekki án hormónagjafa til að stýra öllu ''draslinu'' hjá mér!Crying ég er ferlega pirruð á þessu.. því ef þetta gengur ekki upp hjá mér núna að þá þarf að bíða til næstu blæðinga en þá erum við að flytja norður og þá er það ekki ganga hjá mér. Ég veit þá ekki hvenær ég mun fara næst! Það er meira en að segja það þegar maður er fluttur útá landFrown 

En þetta kemur allt í ljós á föstudaginn og ég verð því bara að reyna að þrauka þangað til. Hef í rauninni ekkert meira að segja því þetta er það helsta sem fýkur um í kollinum mínum núna. Þannig að ég segi bara; þangað til næst....Cool


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband