jæjajæja..

fór í skoðun sl mánudag og haldiði ekki að Þórður sé í fríi?!?!Crying uppáhalds doktorinn..

jæjajæja.. Það var þá ekkert annað í stöðunni en að fá annan doktor og Guðmundur varð fyrir valinu. Heppinn hannTounge jájá allt leit vel út og uppsetninginn verður sennilegast á mánudaginn næsta. Svo spurði ég hann hvort ekki væri hægt að fá að setja upp 2 fósturvísa og hann hélt það nú. Eins og ég sagði við hann; þetta hlýtur að vera okkar val - okkar ábyrgð. Wink

Ég er stödd í vinnunni núna - obbobbobb - það er rólegt að gera akkúrat núna þannig að ég ákvað að láta þessar skemmtilegu upplýsingar inn núna. Mamma er ennþá hjá okkur en Rikki fer á sjóinn núna á fimmtudaginn..Undecided en ég og mútta ætlum út að borða á Red Chilli á föstudaginn og fá okkur frozen margaritaGrinGrin Svo er víst miniættarmót á laugardaginn; mamma og systkini hennar og...........ég! Það verður ''bröns'' og það verður víst ekki te að drekkaHalo svo fer hún mútta mín á sunnudaginnFrown en þau koma nú öll yfir jól og áramót.. það er fínt að byrja hlakka til jólanna núna..

það er best að halda áfram að vinna.. takk í bili


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

get ekki beðið eftir að þú flytjir nær mér

Kysstu mömmuna "okkar" frá mér,það var æði að hittana um helgina

Sigrún K (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 10:56

2 identicon

Hellú.

Leiðinlegt að hann Þórður skuli vera í fríi akkúrat núna. En ég er mjög ánægð með að Guðmundur skyldi taka svona vel í að skella 2 fósturvísum upp

Bið að heilsa múttunni þinni, ég öfunda ykkur nú soldið af föstudagsplaninu!

Ég er einmitt búin að hugsa svo mikið um jólin seinustu daga.Eigum við ekki bara að byrja að telja niður, við eru jú svo bilaðar

Heyri í þér fljótlega 

Fjóla Lind (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 15:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband