vona að Rósa frænka stikni í helvíti!

já hún ''sökkar feitt'' (einsog unglingarnir segja) þessi Rósa frænkaAngry nú er hún að koma í heimsókn þegar hún er ekki velkomin! Ferlega er hún þver. Getur hún engan veginn tekið tillit til þess að viljum ekki sjá hana? við höfum ekki viljað fá hana í rúm 2 ár en samt þarf hún að birtast. Tók prufu í morgun og það var skýrt og greinilegt NEI!! þetta fjandans neiCrying En ég þarf víst að fara í blóðprufu á morgun - það er skylda hjá þeim sem eru í glasa.. ohh hef svo engan áhuga á að rífa mig eldsnemma á lappir, bruna niðureftir, láta draga úr mér blóð og bíða eftir símtali sem verður milli 14 og 16 BARA til þess að heyra:,,því miður-það er neikvætt. En má bjóða þér að koma í viðtal og ræða framhaldið?'' Jakk.. nei takk! Nú verður bara tekin góð pása og svo séð til hvað gerist!

Ég hreinlega hef ekki orku né úthald í meira! Nú þarf ég virkilega að fara að hugsa um hvað ég vill gera við lífi mitt.. á ég að fara í skóla? hef ég úthald í það? munum við reyna aftur í vetur? ææjj ég veit það ekki. Ég veit ekkert í minn hausErrm

En það er best að halda áfram að vorkenna sjálfum sér og éta fullt fullt af súkkulaði.

takk í bili


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl! Las læknisfræði í nokkur ár og hef starfað innn þess geira lengi.

  • Allra best er að hætta að hugsa um þetta og láta lífið ganga sinn vanagang, en ég hef tvær ábendingar til þín sem ég veit að hafa hjálpað
  1. Það eru til egglos próf í apótekum, sem eru frekar dýr en þess virði. Þau segja til um hvenær egglos verður og þá segir sig sjálft að mestar líkur er á að viðkomandi verði ófrísk.
  2. Eftir samfar er gott að koma sér næstum því í þá stellingu að standa á haus - það er að hafa mjaðmagrindina í sem hæstri stöðu miðað við líkamann og halda henni eins lengi og þolið leyfir. Það segir sig einnig sjálft að ef allt sæðið lekur strax út, þá eru litlar líkur á að sæðið nái að komast í snertingu við eggið sem enn er á leið sinni út.

Bestu kveðjur og þætti gaman að vita hvort þetta hefur virkað.

Þorsteinn Erlingsson blaðamaður

iceconnect@gmail.com

Ps. Skrifaði Bleikt&Blátt í sjö ár áður en Davíð Þór gerði það að klámblaði - sorglegt!

Þorsteinn Erlingsson (IP-tala skráð) 24.5.2007 kl. 16:49

2 identicon

Sæll Þorsteinn og takk fyrir þetta;) en trúðu mér.. við erum búin að prufa öll ráð í bókinni en ekkert gerist. Ég veit að fólk meinar vel þegar það segir að maður eigi að hugsa sem minnst um þetta en það er því miður hægara sagt en gert.. eftir uppsetningu þarf maður að bíða í 2 vikur og taka það rólega - það er erfitt að hugsa ekki um þetta en auðvitað reynir maður sitt besta;)

ég mun halda áfram að blogga um mitt daglega líf ásamt þessu ferli okkar í að reyna að eignast barn. Alltaf gaman að fá komment frá sem flestum;)

sammála þér með Bleikt&Blátt..

Elísa (IP-tala skráð) 24.5.2007 kl. 17:05

3 identicon

Heyr heyr stikni hún í heitasta helv...

Stórt knús frá mér til þín

Fjóla Lind (IP-tala skráð) 25.5.2007 kl. 16:19

4 identicon

Hæ elsku Elísa mín mikið hlakkar mig til að hitta þig á morgun og knúsa þig aðeins, að þetta sé leggjandi á fólk einsog ykkur finnst mér svo sorglegt. Þú veist að ég er nálægt og alltaf til staðar þó það sé bara með eyrað.

Við allavegna slettum ærlega úr klaufunum á morgun og höfum gaman af því að hittast allar..

Þín Vala Laufey.

Vala Laufey (IP-tala skráð) 25.5.2007 kl. 16:19

5 identicon

hugsa til þin elisa mín. var sjálf í sónar í dag og er búin að missa fóstrið, þetta er erfitt. enn ég get ekki imynda mér allt sem þú ert búin að ganga í gegnum. vona að öllu mínu hjarta að þetta gangi hjá þér næst. knús

svava (IP-tala skráð) 25.5.2007 kl. 18:46

6 identicon

HEY við allar hverjar að hittast?????

Og enn og aftur,er mér EKKI boðið 

  Mér er ekki boðið !!  

K nús til þín frá mér dúllan  mín

Sigrún K (IP-tala skráð) 25.5.2007 kl. 19:49

7 identicon

Elsku lúsamús. Mikið þykir mér þetta sárt-þið Rikki eruð svo miklir sómaforeldrar að ég vona svo innilega að fleiri börn fái að njóta ykkar. Hugsaði svo mikið til þín í dag. Knús alla leið í Grafarvog.

Sammála Sigrúnu K. : Hverjar allar eru að hittast (og hvað kemur til að mér sé ekki boðið múahhaha??!!)

Elska þig. Þín Berglind fangaverja

Berglind Ósk (IP-tala skráð) 26.5.2007 kl. 01:21

8 identicon

elskurnar mínar.. auðvitað vill ég hitta ykkur allar! það væri besta meðalið.. ;) Elsku Svava mín, ég samhryggist missirinn:( en þú ert sterk og það kemur barn hjá þér, vittu til! Sigrún; ég er að fara að flytja til akureyrar í sumar, það verður heldur betur hittingur þá

Berglind; ég heyri í þér á morgun (eða á eftir..)

takk kæru vinkonur fyrir fallegar kveðjur! elska ykkur mikið mikið

Elísa (IP-tala skráð) 26.5.2007 kl. 03:41

9 identicon

Halló músin mín.

Ekki láta þetta buga þig elsku stelpan mín. Ég get ekki ímyndað mér hvað þetta ferli sem þið hafið gengið í gegnum síðustu mánuði og ár hlítur að taka á þig og ykkur andlega. Á svona tímum verður maður að staldra við og hugsa um allt það góða í kringum okkur. Þið eigin yndislegan bráðgáfaðan strák, litla prinsessu sem er alveg eins og pabbi sinn, fullt af frábærum vinum sem eru til staðar hvað sem á dinur, traustar og hlýjar fjölskyldur, þú ert gullfalleg, gáfuð, hlý, með bein í nefinu, dugleg, góð móðir, góð unnusta, yndisleg vinkona, hress, spræk, með góða heilsu og svona gæti ég lengi talið upp. Auðvitað eru gallarnir einhverjir eins og hjá okkur öllum en miðað við alla þessa góðu hluti þá hverfa litlu gallarnir. MUNDU ÞAÐ ALLTAF.

ÞÚ ERT FRÁBÆR.

Mér þykir vænt um þig og er alltaf til staðar sem ég vona að þú vitir.

Hlakka til að sjá þig í kvöld.

1000 kossar

Þín Birgitta

Birgitta Haukdal (IP-tala skráð) 26.5.2007 kl. 15:44

10 identicon

SVO sammála síðasta ræðumanni.

Vonandi verður svaka stuð hjá ykkur í kveld

Knús og kossar frá mér, agú og kossar frá Karen og kveðjur úr loftinu frá húsbóndanum.

Við elskum Elísu okkar 

Fjóla Lind (IP-tala skráð) 26.5.2007 kl. 16:17

11 identicon

Sæl elskan, leitt að heyra þetta, hefði viljað fá betri fréttir. Þinn tími kemur.

Sigrúnarmamma (IP-tala skráð) 26.5.2007 kl. 22:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband